Niðurstöður dómnefndar
Inngangur
Vorið 2008 ákvað stjórn Faxaflóahafna sf. að hefja undirbúning að opinni hugmyndasamkeppni fyrir Gömlu höfnina og Örfirisey í Reykjavík. Nokkuð lengi hafði þá verið þörf á heildarskipulagi fyrir þetta svæði sem er eitt hinna þýðingarmestu í höfuðborginni.
Viðfangsefni samkeppninnar voru margþætt og má þar meðal annars nefna sóknarfæri í þróun og uppbyggingu atvinnustarfsemi og íbúðarbyggðar, að viðhalda hafnsækinni starfsemi, að tengja hafnarsvæðið betur við miðbæinn og skilgreina þróun samgöngumála á svæðinu.
Við mat á tillögum lagði dómnefnd áherslu á þau atriði sem upp voru gefin í keppnislýsingu og gaf sér góðan tíma til að meta tillögurnar og bera þær saman. Það kom dómnefnd skemmtilega á óvart hversu margir nýttu sér B-hluta samkeppninnar og skiluðu inn tillögum að ýmsum leiðum til að auðga svæðið og efla.
Nú þegar hugmyndasamkeppninni er lokið þakka ég þeim sem sendu inn tillögur fyrir þá miklu vinnu sem þeir hafa lagt af mörkum og um leið fyrir þann áhuga sem þeir hafa sýnt verkefninu. Þá þakka ég dómnefndinni fyrir vel unnin störf, og um leið starfsfólki Faxaflóahafna sf., forystumönnum Arkitektafélags Íslands og öðrum sem að verkefninu komu.
Það var einlæg von okkar sem að undirbúningi samkeppninnar stóðum að hún skilaði fjölbreyttum og metnaðarfullum tillögum sem gætu vísað veginn til framtíðar í skipulagsmálum svæðisins. Þessi von okkar hefur nú ræst.
Júlíus Vífill Ingvarsson,
formaður dómnefndar
Aðdragandi samkeppni
Á 51. fundi stjórnar Faxaflóahafna sf. hinn 13. maí 2008 var samþykkt að hefja undirbúning að opinni hugmyndasamkeppni um þróun og framtíð skipulagssvæðis Gömlu hafnarinnar frá D-reit (norður af Faxagötu) og Ingólfsgarði í austri að Eyjagarði í vestri. Hafnarstjórn fól formanni stjórnar og hafnar-stjóra að vinna að nauðsynlegum undirbúningi samkeppninnar í samvinnu við skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar.
Undirbúningur að samkeppninni hófst sumarið 2008 og var fyrsta verkefni undirbúningshópsins að skoða forsendur samkeppninnar og framtíðarsýn Faxaflóahafna sf. Þá var rætt við ýmsa hagsmunaaðila og ákveðið form samkeppninnar og tilhögun. Lagt var kapp á að vanda til verka svo að þátttakendur hefðu sem bestar upplýsingar um verkefnið og aðdraganda þess og um sögulegan bakgrunn svæðisins.
Undirbúningsnefndina og starfshóp hennar skipuðu:
Júlíus Vífill Ingvarsson – borgarfulltrúi, formaður stjórnar Faxaflóahafna sf., formaður skipulagsráðs Reykjavíkur,
Dagur B. Eggertsson – borgarfulltrúi, í stjórn Faxaflóahafna sf.,
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson – skipulagshagfræðingur,
Ólöf Örvarsdóttir – skipulagsstjóri skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar,
Gísli Gíslason – hafnarstjóri Faxaflóahafna sf.
Í starfshópi sem vann með nefndinni voru:
Vignir Albertsson – skipulagsfulltrúi Faxaflóahafna sf.,
Margrét Leifsdóttir – arkitekt á skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkurborgar,
Þorvaldur S. Þorvaldsson – arkitekt FAÍ,
Ásdís Ingþórsdóttir – arkitekt FAÍ.
Faxaflóahafnir sf. og skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar höfðu allan undirbúningstímann samvinnu um keppnislýsinguna og gögn hennar en sérstakt samráð var haft við samgöngustjóra Reykjavíkurborgar, Austurhöfn TR, Ár- bæjarsafn og Minjavernd. Þá var haft samráð við Arkitektafélag Íslands. Undirbúningsnefndin fór meðal annars í vettvangsskoðun til Hafnarfjarðar og kynnti sér þar skipulag og nýlegar byggingarframkvæmdir við Hafnarfjarðarhöfn.
Í desember 2008 var opnað sérstakt svæði á heimasíðu Faxaflóahafna sf. tileinkað samkeppninni og var þetta svæði opið og uppfært meðan á samkeppninni stóð. Sérstakt netfang var tekið í notkun, samkeppni@faxafloahafnir.is, fyrir ábendingar meðan undirbúningur stóð yfir.
Haldnir voru þrír kynningarfundir vegna samkeppninnar. Sá fyrsti hinn 22. nóvember 2008 og voru til hans boðaðir ýmsir hagsmunaaðilar sem Faxaflóahafnir hafa tengsl við. Mæting var góð og fundarmenn ötulir að koma með ábendingar sem nefndin nýtti sér síðan við áframhaldandi undirbúning samkeppninnar.
Næst var haldin hálfs dags námstefna hinn 13. febrúar 2009 í Loftkastalanum, Seljavegi 2. Á námstefnuna komu tveir erlendir fyrirlesarar og fluttu erindi, þeir Jörn Walter, skipulagsfræðingur frá Þýskalandi, sem fjallaði um þróun og skipulag hafnarinnar í Hamborg, og Karl-Gustav Jensen, arkitekt frá Danmörku og fyrrverandi þróunarstjóri hafnarinnar í Kaup-mannahöfn, sem fjallaði um þróun þeirrar hafnar og nýja samkeppni um norðurhluta hennar (Nordhavnen). Þá var samkeppnin um Gömlu höfnina í Reykjavík kynnt og Sigurður Einarsson arkitekt hjá Batteríinu ehf. gerði grein fyrir skipulags-hugmyndum í tengslum við Tónlistar- og ráðstefnuhúsið sem nú rís við höfnina. Námstefnuna sóttu um 150 manns.
Þá var að lokum haldinn opinn kynningarfundur hinn 19. febrúar 2009, einnig í Loftkastalanum. Fundurinn var fyrst og fremst ætlaður almenningi, sem einnig var boðin þátttaka í samkeppninni. Um 30 manns mættu á fundinn og urðu þar nokkuð líflegar umræður.
Þessir þrír fundir voru allir haldnir áður en samkeppnislýsingin var fullgerð þar sem undirbúningsnefnd vildi gefa væntanlegum þátttakendum og öðrum sem áhuga hafa á málefnum svæðisins tækifæri til að koma skoðunum sínum á framfæri áður en undirbúningi samkeppninnar væri að fullu lokið. Fjöldi góðra ábendinga kom fram á þessum fundum og tók undirbúningsnefndin tillit til þeirra við lokaundirbúning keppnislýsingar. Fundargerðir þessara kynningarfunda er að finna á heimasíðu Faxaflóahafna sf.
Skipan í dómnefnd lauk í mars 2009 og var í kjölfarið lokið við gerð keppnislýsingar. Samkeppninni var síðan formlega hleypt af stokkunum við hátíðlega athöfn á sjómannadaginn, 7. júní.
Dómnefndarfulltrúar tilnefndir af verkkaupa:
Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður dómnefndar, borgarfulltrúi, formaður skipulagsráðs og stjórnar Faxaflóahafna sf,
Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi, í stjórn Faxaflóahafna sf.,
Lena Helgadóttir, arkitekt FAÍ,
Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna sf.
Dómnefndarfulltrúar tilnefndir af Arkitektafélagi Íslands:
Þorvaldur S. Þorvaldsson, arkitekt FAÍ
Valdís Bjarnadóttir, arkitekt FAÍ
Harpa Stefánsdóttir, arkitekt FAÍ
Ritari dómnefndar var Ásdís Ingþórsdóttir, arkitekt FAÍ.
Trúnaðarmaður samkeppninnar var Haraldur Helgason, arkitekt FAÍ, tilnefndur af Arkitektafélagi Íslands.
Ráðgjafar dómnefndar voru þessir:
Jórunn Ragnarsdóttir, arkitekt hjá Lederer+Ragnarsdottir+Oei, Stuttgart, Þýskalandi,
Ólöf Örvarsdóttir, arkitekt og skipulagsstjóri í Reykjavík,
Vignir Albertsson, skipulagsfulltrúi Faxaflóahafna sf.,
Ólafur Bjarnason, samgöngustjóri Reykjavíkurborgar.
Markmið samkeppninnar
Meginmarkmið samkeppninnar var að fá fram frjóar og fjölbreyttar hugmyndir um framtíðarnýtingu og framtíðarskipulag Gömlu hafnarinnar. Að undanskildu aðalskipulagi hefur aldrei verið gert heildarskipulag af þessu svæði þrátt fyrir mikilvægi þess í heildarmynd Reykjavíkur. Með samkeppninni gafst einstakt tækifæri til að skapa í miðborg Reykjavíkur svæði glætt lífi sem tengist höfninni, hafnarstarfsemi og sögu hennar en er um leið mikilvægur hluti miðbæjarins og þess fjölbreytta mannlífs sem þar er með menningarstofnunum, verslunum, þjónustu og íbúðarbyggð.
Vandfundin eru dæmi þess í endurskipulögðum erlendum hafnarborgum að hafnir haldi óbreyttri starfsemi að endurskipulagningu lokinni. Ætlunin með þessari samkeppni var ekki eingöngu að tryggja að líf yrði áfram í og við höfnina heldur að þannig yrði búið um framtíðarskipulag að það efldist um ókomin ár. Umsvif á svæðinu skyldu tengjast útgerð og hafnarstarfsemi en einnig annarri starfsemi, svo sem ferðamannaþjónustu.
Vonir verkkaupa stóðu til þess að verðlaunaðar hugmyndir gætu nýst í framhaldsvinnu við gerð heildarskipulags fyrir svæðið. Þetta á bæði við um aðalskipulag og deiliskipulag svæðisins.
Samkeppnisform
Samkeppnin var almenn hugmyndasamkeppni og öllum opin. Hún var tvískipt:
A-hluti
var ætlaður fagaðilum og þeim sem uppfylltu skilyrði verkkaupa um þátttöku.
Hann fór fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og samkvæmt samkeppnisreglum félagsins.
B-hluti
var öllum opinn án nokkurra skilyrða.
Þar einskorðaðist þáttur Arkitektafélags Íslands við til-nefningu í dómnefnd.
Áherslur dómnefndar
Markmið A-hluta samkeppninnar var að þátttakendur settu fram hugmyndir sem sameinuðu þá mismunandi þætti sem þeim var gert að taka tillit til.
Helstu áhersluatriði dómnefndar við mat á tillögum í A-hluta voru eftirfarandi:
- að tillagan sé sett fram með skýrum hætti og endurspegli hugmynd þátttakanda
- að tillagan taki mið af framtíðarsýn Faxaflóahafna sf.
- þar sem dregnir eru fram fjölbreytilegir kostir hafnarsvæðisins,
- þar sem sóknarfæri til þróunar og uppbyggingar eru nýtt,
- þar sem létt hafnarstarfsemi eflist,
- þar sem áfram verður gert ráð fyrir aðstöðu til útgerðar og fiskvinnslu,
- þar sem Gamla höfnin verður atkvæðameiri hluti miðbæjarins, og bent sé á leiðir til að fegra og auðga mannlífið,
- þar sem gera má ráð fyrir fjölbreyttri landnotkun,
- að í tillögunni felist stefna í þróun atvinnustarfsemi og íbúðarbyggðar á svæðinu,
- að tillit sé tekið til sögu og sögulegra minja svæðisins,
- að tillagan taki mið af náttúru- og veðurfari á svæðinu,
- að umhverfisgæði verði höfð að leiðarljósi,
- að áfangaskipting tillagna sé skýr,
- að hver áfangi geti staðið sjálfstætt og án seinni áfanga,
- að samgöngumál séu leyst í takti við tillöguna.
Markmið B-hluta samkeppninnar var fyrst og fremst að leita eftir áhugaverðum hugmyndum eða lausnum á afmörkuðum sviðum sem þátttakendur gátu valið sjálfir, án þess að þurfa að setja fram heildarsýn fyrir allt svæðið.
Helstu áhersluatriði dómnefndar við mat sitt á tillögum í B-hluta voru að tillagan varpaði nýju eða áhugaverðu ljósi á viðfangsefnið og gæti þannig orðið mikilvægur hlekkur í framtíðarsýn svæðisins.
Verðlaun
Heildarfjárhæð verðlauna í samkeppninni voru kr. 14.000.000, innkaup innifalin. Dómnefnd fékk frjálsar hendur um skiptingu verðlauna að öðru leyti en því að fé til A-hluta væri 12 milljónir og til B-hluta 2 milljónir.
Dómsstörf
Alls bárust trúnaðarmanni 51 tillaga, 12 í A-hluta samkeppninnar og 39 í B-hluta. Allar bárust þær á tilskildum tíma og voru hengdar upp í húsnæði dómnefndar á 2. hæð í Bakkaskemmu við Grandagarð.
Tillögurnar fengu vinnunúmer sem hér segir:
Á fyrsta fundi dómnefndar eftir að keppendur höfðu skilað inn tillögum var ákveðið að tillaga númer 12, merkt 16340, yrði færð í B-hluta samkeppninnar í stað þess að meta hana vanhæfa til dóms þar sem hún uppfyllti ekki skilyrði í A-hluta.
Dómnefnd var sammála um að höfundar hefðu lagt metnað sinn í tillögugerð og margir þeirra sett sig vel inn í keppnislýsingu og framtíðarsýn Faxaflóahafna.
Dómnefndin var kölluð saman 14 sinnum í heild en einnig var unnið í smærri hópum milli funda, þá aðallega arkitektarnir í dómnefndinni.
Við mat sitt bar dómnefnd tillögur saman við áhersluatriði sem gefin voru í keppnislýsingu:
Endurspeglar tillagan hugmynd þátttakanda og er hún skýrt sett fram?
Tekur tillagan mið af framtíðarsýn Faxaflóahafna?
Felst í tillögunni stefna í þróun atvinnustarfsemi og íbúðarbyggðar?
Er tekið tillit til sögu og sögulegra minja?
Tekur tillagan mið af náttúru- og veðurfari og eru um-hverfisgæði höfð að leiðarljósi?
Er áfangaskipting skýr og eru áfangar sjálfstæðar einingar?
Eru samgöngumál leyst í takt við tillögu?
Við gerð umsagna um tillögur studdist dómnefnd einnig við áhersluatriði dómnefndar úr keppnislýsingu.
Niðurstaða dómnefndar var færð til bókar á fundi hennar mánudaginn 23. nóvember 2009 að viðstöddum trúnaðarmanni, Haraldi Helgasyni arkitekt, tilnefndum af Arkitektafélagi Íslands. Trúnaðarmaður las upp nöfn höfunda þeirra tillagna sem hlutu verðlaun eða viðurkenningu.
Mat
Við upphaf dómnefndarstarfa las dómnefnd saman texta allra tillagna og að því loknu fóru arkitektar dómnefndarinnar nánar í útfærslu þeirra. Í ljós kom að tillaga nr. 8 með auðkenni 13749 uppfyllti ekki skilyrði samkeppninnar og var ákveðið að hún yrði ekki tekin til nánari skoðunar.
Að lokinni heildaryfirferð allra tillagna var ákveðið að taka eftirfarandi tillögur til nánari skoðunar: 2) 41155, 3) 12652, 4) 12116, 5) 13137, 9) 09209 og 10) 19170.
Eftir því sem leið á dómnefndarstörf kom í ljós ákveðinn samnefnari í tillögunum og þóttu þær skiptast í þrjá meginflokka:
Tillögur sem gera ráð fyrir nýjum borgarhluta í Örfirisey þannig að öll núverandi byggð þar víki: 1) 51991, 2) 41155, 3) 12652, 6) 25080, 7) 43765 og 11) 52937.
Tillögur sem gera ráð fyrir að fiskihöfn og athafnastarfsemi víki úr höfninni: 1) 51991, 2) 41155, 5) 13137, 6) 25080, 7) 43765 og 10) 19170.
Tillögur sem draga fram lausnir sem í stórum dráttum voru í samræmi við óskir dómnefndar í keppnislýsingu: 3) 12652, 4) 12116, 5) 13137, 9) 09209 og 10) 19170.
Nokkrir höfundar leiddu því hjá sér tvö megin áhersluatriði samkeppninnar sem fram koma í framtíðarsýn Faxaflóahafna sf., þ.e. að efla létta hafnarstarfsemi og viðhalda aðstöðu til útgerðar og fiskvinnslu í höfninni, auk þess að gera Gömlu höfnina atkvæðameiri hluta miðbæjarins.
Sex tillögur gera ráð fyrir að íbúðarbyggð geti aukist nokkuð á landfyllingum þegar litið er til lengri framtíðar. Sjö tillögur gera ráð fyrir að olíubirgðastöð verði áfram á svæðinu, að minnsta kosti í næstu framtíð. Þrjár tillögur gera ráð fyrir að slippurinn starfi áfram á sínum stað, í núverandi mynd eða breyttur.
Sem sjá má voru viðhorf tillöguhöfunda til þessara þátta samkeppninnar æði misjöfn og komu fram fjölbreytilegar
lausnir. Þá var einnig töluvert um nýmæli í hugmyndum sem
lífgað geta upp á svæðið og styrkt það til framtíðar, svo sem um sundlaug og sjóböð, sædýrasafn, listaháskóla og sögutengd þematorg.
Höfundar taka ólíkt á verkefni samkeppninnar og hafa mismunandi afstöðu til svæðisins, allt frá því að gera ráð fyrir óverulegum breytingum til þess að gera ráð fyrir nýju borgarhverfi og þyrma nánast engu sem fyrir er. Í hugmyndasamkeppni er það einmitt þetta víða samhengi sem verkkaupi
sækist eftir og það er sannarlega að finna í tillögum samkeppninnar.
Niðurstaða
Dómnefnd er einhuga um þessa niðurstöðu:
Fyrstu verðlaun, kr. 7.500.000:
Tillaga nr. 4, auðkenni 12116.
Önnur til þriðju verðlaun, kr. 2.000.000:
Tillaga nr. 9, auðkenni, 09209.
Tillaga nr. 10, auðkenni, 19170.
Athyglisverð tillaga / innkaup, kr. 500.000:
Tillaga nr. 5, auðkenni 13137.
Dómnefnd telur eftirsóknarvert að höfundar verðlaunatillögu fái tækifæri til að vinna nánar með ábendingar og athugasemdir dómnefndar í samstarfi við verkkaupa og skipulagsyfirvöld Reykjavíkurborgar með það að markmiði að tillagan nýtist við endurskoðun aðalskipulags á þessu svæði.
Tillaga nr. 1 – auðkenni 51991
Gamla höfnin – andlit Reykjavíkur
Höfundar:
Birgir Bratti Halldórsson
Jón Rafnar Benjamínsson
Svava Þorleifsdóttir
Umsögn
Meginhugmynd tillögunnar er sett fram með þremur hringum sem skilgreina starfsemi, stemningu og landnotkun umhverfis höfnina. Hugmynd höfunda um samspil nýrrar byggðar, skerja og hólma við mismunandi sjávarstöðu er áhugaverð. Í greinargerð kemur fram áhersla á að móta nýjan bæjarhluta í Örfirisey. Við útfærslu teygir íbúðarbyggð sig fram á hafnarbakkana og ryður burt núverandi byggingum og athafnastarfsemi við höfnina. Nýr bæjarhluti virðist í litlum tengslum við núverandi byggð í miðbænum. Göngusvæðið sem umlykur höfnina er heldur umfangsmikið og í útfærslu þess virðist ekki tekið tillit til mismunandi sjávarstöðu.
Framsetning er áferðarfalleg og endurspeglar hugmynd höfunda.
Starfsemi slippsins er haldið áfram og er það í ósamræmi við aðra hluta tillögunnar um að útgerð og athafnastarfsemi víki fyrir íbúðarbyggð fram á hafnarbakkann í Vesturhöfn. Þessi skipan samræmist ekki framtíðarsýn Faxaflóahafna.
Ekki eru lagðar fram tillögur að uppbyggingu eða þróun atvinnustarfsemi sem styrki höfnina sem lifandi útgerðarhöfn.
Ekki er sérstaklega gerð grein fyrir tengslum hug- mynda við sögu og sögulegar minjar.
Ekki er sérstaklega fjallað um náttúru- og veðurfar.
Ekki eru settar fram tillögur um áfangaskiptingu.
Á teikningu eru sýnd op fyrir stokk frá Sæbraut að Ánanaustum en að öðru leyti er ekki fjallað um lausnir í samgöngumálum.
Tillaga nr. 2 – auðkenni 41155
Í öruggri höfn
Höfundar:
ARKITEÓ ADEPT
Einar Ólafsson Martin Laursen
Vinnsla ARKITEÓ: Martin Krogh
Gunnar Sigurðsson Anders Lonka
Vinnsla ADEPT:
Umut Üsüdür
Joanna Bastos
Constantine Miroshnychenko
Javier Lopez-Soldado
Karolina Haczynska
Tatyana Eneva
Umsögn
Höfundar setja fram fjögur meginatriði, sem eru skjólmyndun og gerð síkja, hámörkun umhverfisþátta, fjölbreyttir sjávarkantar og virðing við söguna. Út frá þessum gefnu forsendum er tillagan ýtarlega unnin. Við útfærslu missa höfundar sjónar á helstu áhersluatriðum samkeppninnar sem eru að tengja miðborg og höfn og styrkja þá starfsemi sem fyrir er í höfninni. Þess í stað verður höfnin umgjörð um menningarstarfsemi og bakland fyrir nýtt sjálfstætt hverfi í borginni sem tekur lítið mið af núverandi byggð. Við gerð þessa hverfis leggst núverandi byggð í Örfirisey af, og að auki eru búin til síki þar sem nú er land.
Meginatriði komast vel til skila í greinargóðri framsetningu.
Tillagan tekur lítið mið af framtíðarsýn Faxaflóahafna eins og hún er sett fram í keppnislýsingu. Menningar- og verslunarás uppfyllir ekki þá ósk sem sett er fram um aukin tengsl miðbæjarins við hafnarsvæðið.
Gert er ráð fyrir að á svæðinu þróist blönduð atvinnu-starfsemi og sjálfstæð íbúðarbyggð sem er aðskilin frá miðbænum.
Höfundum hefur ekki tekist að tengja tillögu sína við sögu og sögulegar minjar.
Lausnir til skjólmyndunar og varna gegn sjávargangi eru höfundum ofarlega í huga í greinargerð og skila sér vel í útfærslu tillögunnar. Skoða hefði þurft sólarhæð og skuggamyndun í því samhengi.
Ágætlega er gerð grein fyrir áfangaskiptingu.
Fjallað er um göng frá Sæbraut í Örfirisey en ekki sýnd nánar á teikningum. Að öðru leyti er ágætlega gerð grein fyrir umferð á svæðinu, bæði gangandi og akandi, en lítið er tekið á tengslum hafnar og miðbæjar.
Tillaga nr. 3 – auðkenni 12652
Gamla höfnin og Örfirisey
Höfundar:
Kanon arkitektar ehf.
Teiknistofan Tröð ehf.
MFF ehf.
Vinnuhópur:
Starfsmenn Kanon arkitekta, Teiknistofunnar Traðar,
MFF ehf., H2H hönnunar, eitt A innanhússarkitekta
Anna Sóley Þorsteinsdóttir, arkitekt FAÍ
Halldóra Bragadóttir, arkitekt FAÍ
Helga Bragadóttir, arkitekt FAÍ
Helgi B. Thóroddsen, arkitekt FAÍ
Þorkell Magnússon, arkitekt FAÍ
Þórður Steingrímsson, arkitekt FAÍ
Hans-Olav Andersen, arkitekt FAÍ / MNAL
Laufey Agnarsdóttir, arkitekt FAÍ
Sigríður Magnúsdóttir, arkitekt FAÍ
Sveinn Bragason, arkitekt
Birkir Einarsson, landslagsarkitekt FÍLA
Borgar H. Árnason, grafískur hönnuður FÍT
Hany Hadaya, grafískur hönnuður FÍT
Dóra Hansen, innanhússarkitekt FHÍ
Heiða Elín Jóhannsdóttir, innanhússarkitekt FHÍ
Þóra Birna Björnsdóttir, innanhússarkitekt FHÍ
Ráðgjöf:
Jóhann Sigurjónsson, sjávarlíffræðingur
Þorleifur Friðriksson, sagnfræðingur
Umsögn
Höfundum tekst með ágætum að ná fram þeim meginmarkmiðum sem þeir setja fram: „Gamla höfnin og Örfirisey verður nútímalegur borgarhluti iðandi mannlífs og fjölbreyttra at- vinnuvega með sjálfbæra þróun, byggða á sögulegum grunni til komandi kynslóða.“
Á sama tíma svarar tillagan ekki nægjanlega vel því markmiði samkeppninnar að gera Gömlu höfnina að atkvæðameiri hluta miðbæjarins. Í stórum dráttum er stuðst við fyrirliggjandi deiliskipulag fyrir Mýrargötu- og TRH-reiti en dómnefnd setur spurningarmerki við staðsetningu og útfærslu samgöngumiðstöðvar sem lögð er til í Lækjargötu.
Miðað við markmið höfunda er tillagan skýrt fram sett og kemur til skila megin-áhersluatriðum.
Hafnsækinni starfsemi er viðhaldið og hún styrkt með baklandi nýrrar byggðar og tengdri starfsemi, svo sem sölumarkaði, vísinda- og sædýrasafni og Húsi hafsins. Nýr hafnarkantur og ferðamannaþjónusta austan við Tónlistar- og ráðstefnuhús er góð hugmynd og eykur líf í miðborginni, en nokkru meira bakland þarf fyrir slíka starfsemi en sýnt er. Þannig svarar tillagan framtíðarsýn Faxaflóahafna á vissum sviðum.
Sett er fram metnaðarfull stefna um þróun fjölbreyttrar atvinnustarfsemi á svæðinu. Útfærsla íbúðarbyggðar í Örfirisey er í litlu samhengi við nærliggjandi byggð í miðbænum.
Lögð er áhersla á varðveislu sögulegra minja á svæðinu.
Í greinargerð er tekið fram að staðardagskrá 21 skuli höfð að leiðarljósi við uppbyggingu svæðisins en að öðru leyti er ekki gerð nægjanleg grein fyrir tilliti til náttúru- og veðurfars á svæðinu.
Sýnd er skýr áfangaskipting í tveim hlutum.
Ekki er tekist á við raunverulegan vanda við bílaumferð á svæðinu. Samgöngumiðstöð fyrir höfuðborgarsvæðið er sett niður í Lækjargötu. Höfundur sýnir ekki lausn á þeim umferðarvanda sem óhjákvæmilega fylgir samgöngumiðstöð í hjarta miðborgarinnar.
Tillaga nr. 4 – auðkenni 12116
Eyjar og sund
Höfundar:
Graeme Massie Architects
Edinborg, Skotlandi
Teymi:
Graeme Massie
(stjórnandi og aðalhönnuður)
Robin Sutherland
Samstarfsaðili á Íslandi:
Alta ehf.
Teymi:
Matthildur Kr. Elmarsdóttir
Hrafnkell Proppé
Árni Geirsson
Umsögn
Höfundar setja fram kraftmikla, myndræna og formfasta tillögu sem við nánari skoðun rúmar mikinn sveigjanleika til aðlögunar við núverandi byggð og skipulagshugmyndir.
Lögð er áhersla á að göng undir hafnarmynnið losi umferð frá Geirsgötu / Mýrargötu þannig að miðbærinn fái að „fljóta“ niður að hafnarsvæðinu. Með því ná höfundar að uppfylla annað af meginmarkmiðum samkeppninnar – að styrkja tengsl miðbæjar og hafnar.
Hugmynd að legukanti á fyllingu fyrir millistór skemmti-ferðaskip á D-reit austan Tónlistarhúss er áhugaverð. Á fyllingunni er gert ráð fyrir þjónustuhúsi fyrir ferðamenn og hótelbyggingu sem tengir tónlistarhúsið til austurs við borgarmyndina í heild og myndar skjól fyrir norðan- og norðvestanátt inn í Lækjargötu. Ljóst er að þjónusta við skemmtiferðaskip þarf meira bakland en sýnt er. Við nánari útfærslu þarf í samvinnu við hagsmunaaðila að athuga sérstaklega hugmynd höfunda um nýjan stað fyrir hótel austan við Tónlistar- og ráðstefnuhús, þar sem þessi breyting hefur töluverð áhrif á heildarmynd svæðisins. Önnur svæði þurfa frekari útfærslu, svo sem Ægisgarður og Mýrargötu- og slippasvæði. Slippnum er haldið inni en nálægð byggðar þarf að endurskoða.
Gert er ráð fyrir að olíubirgðastöð verði áfram á sínum stað en til lengri tíma litið sjá tillöguhöfundar fyrir sér að hægt væri að nota svæðið fyrir byggð.
Sundlaug á Ægisgarði í innhöfninni miðri er lífleg viðbót við svæðið og heimsókn þangað gæti verið einstök upplifun.
Framsetning er skýr og kemur heildarsýn höfunda vel til skila. Hún er studd einföldum en innihaldsríkum skýringarmyndum.
Framtíðarsýn Faxaflóahafna er vel svarað í öllum meginatriðum. Skýr skil eru á milli blandaðrar byggðar þar sem saman rúmist íbúðarhúsnæði, athafna- og iðnaðarhúsnæði og vettvangur fyrir menningu og viðskipti.
Í tillögunni felst markviss stefna um þróun og uppbyggingu atvinnustarfsemi og íbúðarbyggðar á svæðinu.
Tillit er tekið til sögu og sögulegra minja, meðal annars með skírskotun til eldra skipulags þar sem götur enda í bryggjum. Gerð er athugasemd við að hluti verndaðra verbúða í Örfirisey víki.
Náttúru- og veðurfari eru gerð skil í skýringarmynd um form bygginga með tilliti til skjólmyndunar og dagsbirtu. Hugmyndin nær í heild ágætlega markmiðum samkeppninnar um umhverfisgæði. Huga þarf betur að stærð opinna svæða og skjólmyndun á þeim.
Ekki er um hreina og klára áfangaskiptingu að ræða heldur gengið út frá því að svæðið fái að þróast smám saman í það horf sem lagt er til.
Samgöngumálum eru gerð góð skil með texta og í skýringarmyndum.
Tillaga nr. 5 – auðkenni 13137
Reykjavíkurhöfn - tillaga að endurheimt og endurnýjun hafnarsvæðis
Arkitektar:
Arkibúllan ehf.
Hjördís Sóley Sigurðardóttir, arkitekt
Hólmfríður Jónsdóttir, arkitekt FAÍ
Hrefna Björg Þorsteinsdóttir, arkitekt FAÍ
Landslagsarkitektar:
Landslag ehf.
Dagný Bjarnadóttir, landslagsarkitekt
Samstarf:
Róbert Þór Haraldsson, landslagsarkitekt
og grafískur hönnuður
Sif Pálsdóttir, landslagsarkitekt
Myndlistarmenn:
Berghall
Anna Hallin, MFA
Olga S. Bergmann, MFA
Aðstoð og innblástur veittu:
Auður Þórhallsdóttir, ljósmyndari
Árni Bergmann, rithöfundur
Birta Þórhallsdóttir, nemi
Hjálmar Sveinsson, heimspekingur
Matthías Löve, nemi
Umsögn
Í tillögunni er tekið á ýmsum áhugaverðum þáttum en skýra yfirsýn vantar. Athyglisvert er hvernig höfundar nýta gamlan vegbút á 3. hæð Tollhússins sem grunn að gönguleið meðfram Miðbakkanum (græna leiðin) auk hafnarstígs sem einnig svífur að hluta til yfir svæðið. Ekki er hægt að sjá að þessar göngu-leiðir bæti tengingar miðbæjarins við höfnina, sem er eitt af meginmarkmiðum samkeppninnar. Hugmynd um göngubrú, áningarstað og sjóbað vestur af svæðinu samræmist ekki gefnum forsendum um veðurfar og sjólag. Gert er ráð fyrir að starfsemi slippsins haldist og er áhugavert og sannfærandi hvernig hann er skilinn með síki frá nærliggjandi byggð.
Tillagan er sett fram á skýran hátt og stemningsmyndir skemmtilegar og viðeigandi.
Framtíðarsýn Faxaflóahafna hefur verið höfundum hugleikin og gert er ráð fyrir að hafnarstarfsemi haldist nánast óbreytt.
Fyrir utan byggingar fyrir „farfugla“ í Örfirisey er ekki gert ráð fyrir þróun íbúðarbyggðar á svæðinu.
Tekið er tillit til sögu og sögulegra minja með skírskot-un í sögu svæðisins í útfærslu tillögunnar.
Ekki virðist sérstaklega tekið tillit til náttúru- og veðurfars.
Ekki er fjallað um áfangaskiptingu.
Segja má að samgöngumál séu óhreyfð enda forsendur óbreyttar – gefið er í skyn að Geirsgata og Mýrargata geti orðið að breiðgötu en ekki er gerð nánari grein fyrir því.
Tillaga nr. 6 – auðkenni 25080
Reykjavíkurhöfn
Höfundar:
Magnús Freyr Gíslason, arkitekt MAA
Rúnar Halldórsson
Umsögn
Tillögunni er skipt upp í fjögur meginsvæði sem hvert og eitt hefur sitt sérkenni. Gert er ráð fyrir íbúðarbyggð niður að sjó og út á bryggjur í Vesturhöfn og á Mýrargötusvæði en Listaháskóla, hóteli og annarri ferðamannaþjónustu fram á Miðbakka. Þessi útfærsla tekur lítið mið af meginmarkmiði samkeppninnar um að viðhalda hafnarstarfsemi í höfninni sem lifandi höfn og auka tengsl miðborgarinnar við hafnarsvæðið.
Tillagan er ágætlega skýr miðað við forsendur höfundar en texti hennar er ekki nægjanlega vandaður.
Tillagan tekur lítið tillit til þeirra þátta í framtíðarsýn Faxaflóahafna sem lúta að áframhaldandi sjávarútvegsstarfsemi í höfninni.
Hugmynd um þróun atvinnustarfsemi og íbúðarbyggðar er óraunhæf.
Ekki virðist tekið tillit til sögu eða sögulegra minja hafnarsvæðisins.
Hvorki er fjallað sérstaklega um náttúru- og veðurfar né umhverfisgæði.
Áfangaskiptingu eru ekki gerð skil.
Tillaga um stokk undir Mýrargötu sýnir ekki hvernig auka megi tengsl miðbæjarins við hafnarsvæðið í heild, sem er þó eitt af markmiðum samkeppninnar.
Tillaga nr. 7 – auðkenni 43765
Litur og ljós
Carsten Trojan dipl.-ing. Architekt
Þýskalandi
Ráðgjöf og þýðing:
Sigrún Guðjónsdóttir
Umsögn
Hugmyndir um liti og ljós eru skemmtilega fram settar og koma meðal annars fram í litríkri áferð olíutankanna, en eru að öðru leyti í litlu samhengi við inntak tillögunnar. Markmið samkeppninnar um að tengja miðborgina betur við höfnina og viðhalda starfsemi hennar sem lifandi útgerðarhafnar nást ekki. Gert er ráð fyrir stokk framan við hafnarmynnið til að anna auknu umferðarflæði vegna nýrrar byggðar en ekki er að sjá að tengsl milli miðbæjar og hafnar eflist. Hugmynd um móttöku stórra skemmtiferðaskipa í Örfirisey er ekki góð með tilliti til náttúru- og veðurfars. Tillagan er í heild sinni óraunhæf sem rammi um uppbyggingu við Gömlu höfnina í Reykjavík.
Á margan hátt er tillagan skýrt sett fram en skýringar-myndir eru ekki til þess fallnar að varpa ljósi á inntak hennar og stemningsmyndir eru framandi reykvísku andrými.
Ekki er tekið tillit til þeirra áhersluatriða sem sett eru fram í framtíðarsýn Faxaflóahafna um lifandi athafna-höfn þar sem áfram sé stunduð útgerð og fiskvinnsla.
Slippnum og annarri starfsemi í Suðurbugt er haldið og er það áhugavert en í ósamræmi við að ekki er gert ráð fyrir annarri hafnarstarfsemi á svæðinu. Hugmynd um útsýnisturn á Ægisgarði er nokkuð yfirdrifin.
Lítið tillit er tekið til sögu og sögulegra minja svæðisins.
Ekki er að sjá að tillöguhöfundar geri sér grein fyrir sjávarföllum við útfærslu hafnarbakka.
Settar eru fram hugmyndir um mögulega áfanga-skiptingu.
Samgöngumál eru leyst með stokk undir hafnarmynnið og á hann að anna aukinni umferð vegna íbúðar byggðar. Settar eru fram áhugaverðar hugmyndir um stýringu umferðar.
Tillaga nr. 8 – auðkenni 13749
Tillagan er sett fram með skýrum hætti og endurspeglar hún hugmynd þátttakenda, en í henni er ekkert fjallað um þau atriði sem óskað er eftir í keppnislýsingu um Gömlu höfnina ásamt Örfirisey í Reykjavík.
Stórtækar hugmyndir um eyjabyggð í og við Reykjavík eiga fátt sameiginlegt með þeirri samkeppni sem hér um ræðir.
Tillögunni er í megindráttum ekki skilað í samræmi við keppnislýsingu og verður því ekki nánar fjallað um hana í niðurstöðu dómnefndar.
Tillaga nr. 9 – auðkenni 09209
Hlutverk hafnarinnar fléttast saman
Höfundar:
Björn Ólafs arkitekt
François Perrot arkitekt
Ráðgjafi vegna landfyllingar:
Gunnlaugur Kristjánsson
Umsögn
Tillagan er einföld og skýr sem „hugmyndaskipulag“ eða „rammaskipulag“. Í henni eru skilgreind þrjú meginsvæði hafnarinnar sem hjarta miðborgarinnar, miðstöð ferðamannaþjónustu og fiskihöfn og sýnt hvernig þessi svæði fléttast saman. Gegnumumferð er sett í stokk út fyrir hafnarmynnið og á hann að anna aukinni umferð vegna hugsanlegra fyllinga og íbúðarbyggðar. Lagt er til að sjón- og göngulínum sé haldið út þær götur sem vísa niður að hafnarsvæðinu frá núverandi byggð.
Framsetning er einföld og skýr og endurspeglar vel hugmynd höfundanna.
Tekið er tillit til framtíðarsýnar Faxaflóahafna þar sem Gamla höfnin verður atkvæðameiri hluti miðbæjarins og gera má ráð fyrir fjölbreyttri landnotkun.
Í tillögunni felst góð blanda atvinnustarfsemi og íbúðarbyggðar í Örfirisey og við hana, og er skýrt afmörkuð. Hugmynd um landfyllingar er nokkuð stórtæk.
Segja má að tekið sé tillit til sögu og sögulegra minja með því að viðhalda að mestu þeirri starfsemi sem á svæðinu er.
Sérstakt tillit er tekið til náttúru- og veðurfars við ákvörðun um legu og form fyllinga.
Áfangaskiptingu eru gerð góð skil með fjórum áföng-um.
Í tillögunni eru samgöngumálum gerð ýtarleg skil.
Tillaga nr. 10 – auðkenni 19170
Perlur Reykjavíkurhafnar
Höfundar:
ASK Arkitektar ehf.
Þorsteinn Helgason, arkitekt FAÍ
Gunnar Örn Sigurðsson, arkitekt FAÍ
Páll Gunnlaugsson, arkitekt FAÍ
Valdimar Harðarson, arkitekt FAÍ
Umsögn
„Perlur Reykjavíkurhafnar“ leika lykilhlutverk en þær eru mismunandi torg umhverfis hafnarsvæðið og tengjast með göngubrú yfir hafnarmynnið. Þannig er mynduð áhugaverð gönguleið umhverfis höfnina. Tillagan er skemmtilega fram sett með 15 markmiðum, en við útfærslu hafa nokkur af þessum markmiðum glatast. Bryggja og legukantur fyrir skemmtiferðaskip austan Tónlistarhúss er leyst á áhugaverðan hátt en slík starfsemi þarf meira bakland.
Í heild er ekki tekið mið af því markmiði samkeppninnar að áfram verði gert ráð fyrir útgerð og fiskvinnslu í höfninni. Til framtíðar er gert ráð fyrir að byggja megi eyjaklasa á fyllingum umhverfis Örfirisey og í Eiðisvík og allt að Seltjarnarnesi. Umfang byggðar á fyllingum er nokkuð yfirdrifið og vafasamt er að setja íbúðarbyggð á fyllingar norðan og austan við eyna.
Tillagan endurspeglar á skýran hátt hugmyndir höf- unda.
Lítið tillit virðist tekið til framtíðarsýnar Faxaflóahafna um athafnahöfn en þess í stað lögð áhersla á ýmiss konar menningar-, þjónustu-, og ferðamannastarfsemi. Atvinnustarfsemi í Örfirisey er breytt í þjónustusvæði fyrir íbúðarbyggð.
Tillagan sýnir þróun íbúðarbyggðar og tengda þjónustu.
Torgin eru skemmtileg tenging við sögu og minjar svæðisins en huga þarf frekar að afmörkun þeirra og útfærslu.
Skerjamyndun utan við nokkuð miklar fyllingar er til þess fallin að bæta sjólag við þær. Þá myndar ný byggð skjól fyrir Vesturbæinn.
Áfangaskiptingu eru ekki gerð skil.
Gert er ráð fyrir göngum frá Sæbraut að Ánanaustum til að þjónusta nýtt íbúðahverfi.
Tillaga nr. 11 – auðkenni 52937
Höfundar:
Eva Schønnenmann
Ráðgjafi:
Hildur Gunnlaugsdóttir
Umsögn
Greinilegt er að höfundur hefur lagt töluverða vinnu í hina smáu og fíngerðu þætti en nokkuð vantar á heildarsýn tillög-unnar. Formgerð bygginga er megininntak tillögunnar en óraunhæf stærð og gerð íbúðarbyggðar í Örfirisey og ómarkviss hringlaga bygging og húsalengjur við Mýrargötu eru tillögunni ekki til framdráttar.
Framsetning tillögunnar er nokkuð litlaus og sundurleit.
Gert er ráð fyrir að hafnarstarfsemi haldist í bland við aðra starfsemi, svo sem Listaháskóla og skrifstofur.
Segja má að í tillögunni felist stefna um þróun at- vinnustarfsemi en með óhefðbundnum og óljósum hætti.
Gert er ráð fyrir að saga svæðisins haldist með því að byggt er „ofan“ á það sem fyrir er.
Hvorki er hugað sérstaklega að náttúru- og veðurfari né umhverfisgæði höfð að leiðarljósi.
Áfangaskiptingu í fjórum þrepum er lýst í skýringar-myndum.
Gert er ráð fyrir göngum úti fyrir hafnarmynni sem lausn í samgöngumálum, en að öðru leyti ekki gerð frekari grein fyrir þeim.
Í B-hluta samkeppninnar bárust 39 tillögur og ein tillaga úr A-hluta var færð í B-hluta. Nokkrum tillögum var skilað inn á ensku og ákvað dómnefnd á fyrsta fundi sínum að láta þann annmarka ekki verða til þess að tillögurnar yrðu dæmdar úr leik. Dómnefnd þótti frískandi að sjá hversu fjölbreyttar og áhugaverðar hugmyndir komu fram og hvað framsetningin var margbreytileg. Meginmarkmið með B-hluta samkeppninnar var að fá fram hugmyndir sem mætti nýta til þess að auðga hinar eiginlegu skipulagshugmyndir fyrir svæðið og kom það því dómnefnd nokkuð á óvart hversu margar skipulagstillögur var að finna í B-hlutanum. Dómnefnd sér fyrir sér að ýmsar af þeim hugmyndum sem þar koma fram muni nýtast við áframhaldandi vinnu við skipulag svæðisins.
Líkt og í A-hluta greindust tillögurnar fljótlega í þrjá ólíka flokka:
Tillögur sem skilgreina mætti sem skipulagstillögur.
Tillögur þar sem sett er fram ein ákveðin hugmynd.
Tillögur sem flokka mætti sem umhverfislistaverk.
Að lokinni heildaryfirferð í B-hluta var ákveðið að veita samtals átta verðlaun í tveim flokkum og eru verðlaunatillögurnar þessar:
Verðlaunaðar tillögur
Kr. 300.000
Tillaga nr. 23 – auðkenni 57802
Segull
Stafrænt gagnvirkt umhverfislistaverk við Gömlu höfnina.
Gagnvirkt listaverk sem byggist á hugmyndum um notandaviðmót í rými, LED-skjái, hátalara, gagnvirkni og tölvukerfi og er fyrst og fremst hugsað fyrir slippa-svæðið. Miðilinn má nota til að miðla upplýsingum frá almenningi, koma á framfæri skilaboðum eða spegla stund og stað. Einnig má útfæra listviðburði með miðlinum. Hægt að útfæra á ýmsa vegu, stórt eða smátt. Nafnið Segull er tilvísun í verslunina sem stóð við Mýrargötu og þjónustaði skipaflotann í mörg ár.
Áhugaverð og faglega útfærð hugmynd.
Höfundar:
Strandcats - New Media and Landscaping (Danmörk)
Ásta Olga Magnúsdóttir
Hilke Kristina Zielbauer
Tillaga nr. 26 – auðkenni 36812
Óður til hafsins
Skipulagstillaga fyrir Miðbakkann.
Skemmtileg útfærsla á húsi yfir fisk- og kjötmarkað á Miðbakka þar sem smábátar geta siglt inn með afurðir. Einnig er gert ráð fyrir sundlaug og sjóböðum, „Húsi hafsins“ með sædýrasafni og sýningu um sögu fiskveiða og -vinnslu. Er það skemmtileg viðbót við svæðið.
Fallega og faglega útfærð lítil skipulagstillaga.
Höfundur:
Ragnhildur Ingólfsdóttir, arkitekt
Aðstoð veittu:
Selma Reynisdóttir, tækniteiknari
Sverrir Ásgeirsson, hönnuður
Tillaga nr. 29 – auðkenni 29109
Graffiti Grandi
Skreyting olíutanka
Grafittí-listamenn fá að tjá sig á sjö útvöldum olíutönkum. Skemmtilegar ljósmyndir af tönkunum eins og þeir gætu litið út eftir listræna „meðferð“. Hugmynd sem nýta má strax.
Framsetning er frjálsleg og lifandi.
Höfundur:
Kolbeinn Stígsson
Tillaga nr. 48 – auðkenni 34170
Kennileiti að veröld
Skipulagstillaga fyrir Reykjavík
Stórtæk skipulagstillaga sem tekur ás frá Hallgrímskirkju og út í sjó að „hlýrri ísparadís“. Höfundur eltir landslagið í borg- inni og setur fram tillögu um grænan borða sem leikur sér um dali borgarinnar. Stórtæk og fallega framsett tillaga sem eflir ímyndunaraflið um tengsl milli borgarhluta.
Höfundur:
Sunay Erdem, landslagsarkitekt
Gunay Erdem, arkitekt
Aðstoð veittu:
Didar Aygun
Guðmundur Benediktsson
Kr. 200.000
Tillaga nr. 30 – auðkenni 90509 Leikvöllur á Granda
Leikvöllur á Granda
og lágmynd af svæðinu
Tillaga að leikvelli með sjóræningjaskipi á Miðbakka ásamt
líkani af hafnarsvæðinu (svipuðu og Íslandslíkaninu í Ráðhúsi Reykjavíkur). Greinarmunur gerður á þrívíðu og tvívíðu samhengi, sumt málað á jörðina en skipið er í þrívídd og fullt af ævintýrum.
Framsetning frjálsleg en skýr.
Höfundur:
Valgerður Hjaltalín
Tillaga nr. 34 – auðkenni 89699
Hafnargarður
Leikvöllur á Norðurbakka
Hugmynd um hafnargarð á Norðurbakka sem þróaðist út frá hugmynd um bátabíó. Garðurinn er fjölnota, einskonar fjölskyldu- og hafnargarður (ekki fjölskyldu- og húsdýragarður). Svið, grill, leiktæki, garður sem nota má allan ársins hring.
Hugmyndinni komið vel og skýrt til skila, meðal annars með ljósmyndum af stemningu.
Höfundar:
Ásdís Nína Magnúsdóttir
Eyrún Engilbertsdóttir
Tillaga nr. 36 – auðkenni 55119
Leikir
Samantekt leikja sem búnir voru til á hafnarsvæðinu
Hópur ungmenna fór um svæðið og bjó til leiki sem teknir voru saman í hefti með ljósmyndum og skýringum. Notast var við svæðið eins og það er og leikir unnir út frá leikmunum („props“) sem til féllu. Frjó hugsun og leikir á hverju strái ef vel er að gáð.
Framsetning nokkuð óskýr á köflum.
Höfundar:
Nemendur í Myndlistarskólanum í Reykjavík
Tillaga 59 – auðkenni 10110
Lýsing síðdegis á Miðbakkanum. Sundsprettur og keypt í matinn þar sem aflinn kemur að landi. Lýsing á breytingu svæðisins frá því samkeppnin var haldin – ljóðræn sýn úr framtíðinni.
Einföld og falleg tillaga.
Höfundur:
Anna María Bogadóttir
Höfundar annarra tillagna í B-hluta:
Tillaga: 12
Auðkenni 16340
Björn Kristinsson
Medró-hópur verkfræðideildar HÍ:
Birgir Jónsson
Sigurður Erlingsson
Þorsteinn Þorsteinsson
Tillaga: 21
Auðkenni: 27069
Emma Guðrún Heiðarsdóttir
Tillaga: 22
Auðkenni: 50862
Sindri Snær Harðarson
Tillaga: 24
Auðkenni: 04089
Þórður Ingi Jónsson
Tillaga: 25
Auðkenni: 23049
Aron Breki Jónasson
Tillaga: 27
Auðkenni: 12345
Þröstur Söring
Tillaga: 28
Auðkenni: 31007
Birgir Jóhannsson, arkitekt
Tillaga: 31
Auðkenni: 86468
Freyja Önundardóttir
Tillaga: 32
Auðkenni: 82769
Þröstur Þórsson
Tillaga: 33
Auðkenni: selur369
Torfi Hjartarson
Tillaga: 35
Auðkenni: 30079
Ragnhildur Alda M.V.
Tillögur: 37–42
Auðkenni: 72608–72613
Brynja Ríkey Birgisdóttir
Tillaga: 43
Auðkenni: 14281
Ólafur Baldvin Jónsson
Tillaga: 44
Auðkenni: 31089
Ásgerður Heimisdóttir
Tillaga: 45
Auðkenni: 54321
Adam Einar Hildarson
Tillaga: 46
Auðkenni: 11111
Elísabet Rún Þorsteinsdóttir
Tillaga: 47
Auðkenni: 55555
Halla Einarsdóttir
Tillaga: 49
Auðkenni: 40403
Tanja Jordan Arkitekter aps.
Hrafnkell Birgisson design
Employees:
Tanja Jordan, arkitekt,
Hrafnkell Birgisson, design
Maria Ahn Walther, arkitekt
Consultants:
Brynhildur Pálsdóttir
Theresa Himmer
Þóra Valsdóttir
Tillaga: 50
Auðkenni: 46331
Fríða Sigurðardóttir arkitekt FAÍ
Jóhann Sigurðsson arkitekt FAÍ
Tillaga: 51
Auðkenni / ID: 88888
Þorleifur Friðriksson
Tillaga: 52
Auðkenni: 58177
Dýrfinna Benita Garðarsdóttir
Tillaga: 53
Auðkenni : 11211
Brynjar Helgason
Eftirfarandi tillögur voru unnar á námskeiðinu „Byggðarskipulag“ við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild HÍ haustið 2008.
Umsjónarkennarar voru:
Trausti Valsson,
prófessor í skipulagsfræðum
Guðmundur Freyr Úlfarsson,
prófessor í samgöngufræðum
Tillaga: 54
Auðkenni: 53782
Þátttakendur:
Ainara Casajús Vallés (Spáni)
Katrín Sóley Bjarnadóttir (Íslandi)
Sara Gustavsson (Svíþjóð)
Mario Rodas Talbot (Ekvador)
Tillaga: 55
Auðkenni: 75132
Þátttakendur:
Moa Midböe (Svíþjóð)
Natalie Breton (Frakklandi)
Sébastien Fruleux (Frakklandi)
Lukáš Pospíšil (Tékklandi)
Tillaga: 56
Auðkenni: 47318
Þátttakendur:
Albert Catalá i Rovirosa (Spáni)
Magalie Mollard (Frakklandi)
Óskar Gísli Sveinsson (Íslandi)
Tillaga: 57
Auðkenni: 12345
Þátttakendur voru:
Kjartan Due Nielsen (Íslandi)
Marie Erlandsson (Svíþjóð)
Marie-Léonie Mortamet (Frakkland)
Oskar Garcia Villaverde (Spáni)
Tillaga: 58
Auðkenni: 66998
Þátttakendur voru:
Carlos Lorenzo Leon (Spáni)
Loïc Baron (Frakklandi)
Sylvain Richard (Frakklandi)